Fyrirkomulag námskeiðs
Þetta námskeið er hægt að kaupa hvenær sem er, hlusta/horfa á myndbönd og æfa sig. Dagsetningar sem auglýstar eru, eru fyrir Zoom tíma.
Á Zoom gefst þátttakendum tími til að spyrja, fá stuðning og hugmyndir - og ráðgjöf, auk hugmyndaflæðis.
Buxur eru úr alls konar efnum, allt frá þunnum bómullarefnum upp í þykk og stíf gallaefni. Hvert sem efnið er sem buxurnar eru saumaðar úr, þá nýtist það áfram eftir að buxurnar hafa lokið sínu lífi. Buxnaefni búa yfir margs konar möguleikum þegar kemur að endurnýtingu og með því að nýta áfram efnið og minnka kaup á nýjum vörum, sauma td. uppúr gömlum buxum í stað þess að kaupa nýtt, leggjum við okkar að mörkum við að hjálpa Móður Jörð - á sama tíma og við sköpum eitthvað einstakt sem enginn annar á.
Á námskeiðinu skoðum við möguleikana sem felast í að breyta buxum til að nýta þá áfram.
Farið verður í hugmyndaflæði þar sem þátttakendur fylgja ferli sem leiðir þá frá hugmynd að framkvæmd. Í lok fyrsta tíma er gert ráð fyrir að þátttakendur séu tilbúnir með hugmynd sem þeir vinna svo heima fram að næsta tíma. Í seinni tímum er haldið áfram að vinna með hugmyndir, verkefni kláruð eða byrjað á nýjum.
Í lokuðum hópi á Facebook hafa þátttakendur daglegan aðgang að mér og minni þekkingu hvað varðar fatabreytingar, auk þess að þiggja alla þá ráðgjöf sem þeir óska eftir.
Allir tímar eru teknir upp og hafa þátttakendur aðgang að upptökum eins lengi og þeir óska.
Verð kr. 33.000
- FRÍTT fyrir meðlimi Gull- og Silfurnálarinnar í Saumaheiminum.