Fyrirkomulag námskeiðs

Þetta námskeið er hægt að kaupa hvenær sem er, hlusta/horfa á myndbönd og æfa sig. Dagsetningar sem auglýstar eru, eru fyrir Zoom tíma.

Á Zoom gefst þátttakendum tími til að spyrja, fá stuðning og hugmyndir - og ráðgjöf, auk hugmyndaflæðis.

Á námskeiðinu skoðum við möguleikana sem felast í að breyta fötunum til að nýta þau áfram. Farið er í gegnum þrjú stig hugmyndaflæðis í hvert skipti og unnið með 1-2 flíkur í hvert sinn. Að auki útbúa þátttakendur margnota snið sem hægt er að breyta eftir hentugleika, allt eftir því hvaða flík er verið að breyta og hvernig.

Í lok hvers tíma er gert ráð fyrir að þátttakendur séu tilbúnir með hugmynd sem þeir vinna svo heima fram að næsta tíma.

Útbúin eru keilusnið, kragasnið og axlarsnið.

Í lokuðum Facebook hópi hafa þátttakendur daglegan aðgang að mér og minni þekkingu hvað varðar fatabreytingar, auk þess að þiggja alla þá ráðgjöf sem þeir óska eftir.

Allir tímar eru teknir upp og hafa þátttakendur aðgang að upptökum eins lengi og þeir óska.

Verð kr. 43.000 - FRÍTT fyrir meðlimi Gull-og Silfurnálarinnar í Saumaheiminum.



Breyting á sídd og ermum


Breyting á vídd


Breyting, tveir kjólar sameinaðir


Efni námskeiðs


  Fatabreytingar - Grunnur
Available in days
days after you enroll
  Breytingar á sídd
Available in days
days after you enroll
  Breytingar á vídd
Available in days
days after you enroll
  Breytingar á ermum
Available in days
days after you enroll
  Breytingar á hálsmáli
Available in days
days after you enroll

Fatabreytingar-Grunnur